|
|
09.11.2006 14:50:41 / leosnaer
Seint gleymist okkur félögunum er
lögðu upp í þessa spánar reisu þegar Svansinoff stal senunni í
örvæntingarfullri tilraun erfingjans, njólafs, og Daða í að
fanga 3 óspjallaðar Grískar meyjar sem þeir hittu á daglegri
göngu sinni á ströndinni. Þeir mældu sér mót við stúlkurnar á
paraiso centro, sem var hótel okkar Árna og Daða kl. 21.00 þeir
báðu mig Árna og Svansa að taka saman þau föt og dót sem við
hugðumst notast við um kvöldið, því að þetta væru góðar stelpur
sem ættu allt betra skilið en að hitta drykkjufauta og ómerka
flagara eins og okkur og að við værum ekki velkomnir upp á hótel
eftir 19.00 við brostum út í annað á meðan að við græjuðum okkur
fyrir kvöldið. Þegar að við erum að tölta út um dyrnar, þá
heirum við þá vera að skipta á milli sín verkum um að þrífa
íbúðina og hver
ætti að kaupa ostana og rauðvínið og að einhver þyrfti að
hringja í soja-svein og fá hann til að stílisera drrengina fyrir
kvöldið því að hann væri svo fínn í tauinu alltaf.
Við drengirnir settumst á bar niður
við strönd og splæstum í nokkur glös. Við skeggræddum plön uppana
eins og við vorum farnir að kalla þá og við hlógum af þeim af
einskærri öfund, þó að við viðurkenndum það nú seint. Nokkrum
hlátrasköllum og glösum seinna hitti Svansi enska vinkonu sem að
hann hafði kynnst fyrr í ferðinni og hann lét sig hverfa með
sigurbros á vör. Klukkan var að nálgast 1 er ég og Árni
skakklöppumst arfa fullir á barinn sem að við drengirnir vorum
vanair að hittast á er okkur til mikillar undrunar sjáum við Svein
og Svansa mökk ölvaða og ekki viðræðu hæfa og erfingjan,Njólaf og
Daða nokkuð súra á svip. Hvar eru þessar Grísku spurðum við, ekkert
bólaði á svari frá þeim félögum. Ég bauð Daða upp á glas og dró
hann á barinn og hann sagði mér söguna. Sko við fengum Svein til að
koma og græja okkur og gera íbúðina klára. Svo þegar öllu sem því
tengdist var lokið þá fórum við út að borða. Við hittum svo á
stelpurnar fyrir utan veitingastaðinn og við buðum þeim í
glas,Sveinn lét sig hverfa og sagðist ætla að hitta ykkur, en við
sátum áfram hátt í 2 tíma á staðnum. En þegar við loks komum upp á
hótel þá er það fyrsta sem við sjáum er Sveinn nær dauða en lífi af
áfengisneyslu að tefla skák við færeyingana sem eru á annari hæð, í
lobbíinu. Við læddumst framhjá honum og fórum upp í íbúð. Þegar
þangað var komið blasti við okkur ófögur sjón. Svansi lá á
nærbuxunum einum saman í kjöltu einnar stúlku með belginn troðinn
af ostum og snakki sem við höfðum keypt og blóðrauðar varir eftir
eina og hálfa rauðvínsflösku, kófsveittur eftir æfingar kvöldsins.
Svona lá hann og skreytti sig stolnum skraurtfjöðrum á okkar
kostnað, um hversu mikill gentleman og smekks maður hann væri.
Stúlkan var lömuð af hrifningu hvernig” Svansi gengi um íbúðina
sína og af frábærum vínsmekk hans”. Og þar með voru plön riddarana
3 úti og þær grísku létu sig fljótlega hverfa. En þess má nú geta
að Svansi fláði ei feitan gölt með þessum drengskapar svikum sínum.
Því sú enska lét orðróminn um tignleika,herra og snirtimensku hins
göfuga svansinoff berast og eftir nokkra daga var ekki fótandi í
kringum Svansa fyrir enskum hommum og mis fallegum hnátum sem þráðu
það eitt að eiða tíma sínum með konungi fuglana, einráðnu í
lundaríki, prófastinum Svansinoff. En ég vil biðja ykkur kæru
lesendur um að ath. Það að þessi saga er skrifuð eftir götóttu
minni Daða frænda og fórum við jafnan með staðreyndir eftir hans
höfði, sem þykir síður en svo gáfulegt
»
20.09.2006 17:23:45 / leosnaer
Hamingjan hófst þriðjudaginn 10
ágúst er við héldum í víking til spánar við félagarnir ég, Árni
og Daði. Við komumst að því okkur til lítillar ánægju að fluginu
hafði verið frestað um 3 tíma þannig að við keyptum okkur allir
1 flösku af tópas og skelltum í okkur á met tíma, og urðum svona
medium rear á eftir og vorum þá færir um flestan sjó. Við vorum
komnir upp á hotel um miðnótt þá gengum við frá dótinu okkar og
skelltum í okkur einni blöndu og skelltum okkur svo á barinn.
Þar hittum við meistara mikla þá soja-Svein “Svein Ágúst”,
Svansinoff”Svan”erfingjan”Inga”og njólaf”Óla moreno”. Við
þynntum blóð okkar vel með vodka redbull. Við vorum á pöbbarölti
fram á nótt, en enduðum í strand partýi með gítar og munnhörpur,
þar voru sungnir íslenskir drykkju söngvar og Svansi sá um að
kyrja gamlar íslenskar rímur og jóðla svissnesk lög í pásum sem
vakti mikla kátínu viðstaddra. Daði var orðinn nokkuð þurr í
kverkum eftir allan sönginn og hláturinn svo að hann ákvað að
redda sér svaladrykk en var orðinn aura laus, þá tóku þeir soja
Sveinn og Svansi upp á því að fara að betla klink svo að Daði
gæti svalað þorstanum, þeir náðu að safna fyrir hálfum lítra af
vatni og björguðu þannig Daða frá bráðri uppþornun. Sem betur
fer því mér hefði þótt sárt að sjá á eftir Daða í myrkan dauðan,
allavega svona á fyrsta kvöldi Svona liðu dagarnir látlaust
áfram með mikilli gleði og ógleymanlegri hamingju. Eitt kvöldið
þá ákvað Árni að vera heima en ég og Daði ákváðum að fara og
kanna stöðuna á markaðnum, þar hittum við að sjálfsögðu púkana
okkar og við buðum þeim heim í partý eftir allt pöbba og diskó
geimið. En þegar við erum á fyrstu blöndu á heimavelli þá er
barið á dyr hjá okkur og það voru meistarar sem bjuggu á sama
hóteli og við. Það var drukkið einhver óhemja af áfengi, nema
hvað að annar gesta okkar lætur lífið af ofnotkun á skandinoff
vodka, það skiptir ekki sköpum um að Svansi rífur upp pungsnyrti
rakvélina hans Daða og rakar skemmtilegan skalla á kauða.
Klukkan var ca. 11 um morgun þegar þetta átti sér stað og enn og
aftur er bankað á dyr það voru þær Aníta og Harpa hnátur sem að
bjuggu á sama hóteli og við. Þær voru bara að minna okkur á að
við ætluðum með þeim í sundlaugargarðinn. Við gátum að
sjálfsögðu ekki svikið skvísurnar svo að við hentum okkur í
galla og drifum okkur. Þegar að við vorum öll búin að sprikla
nægju okkar í laugunum, þá var ákveðið að finna sér bar og passa
upp á að fráhvarfseinkenni frá áfenginu næði okkur ekki.
Stelpurnar gengu hægt og getnaðarlega á undan okkur í von um að
finna rétta barinn, nema hvað Svansi réði ekki við að horfa á
getnaðalega líkamana á stúlkunum svo að hann réðist á þær og
losaði slaufurnar á bikiníinu hjá þeim okkur öllum til mikillar
ánægju nema þeirra og hann hlaut skammir og svívirðingar frá
stelpunum en klapp á öxlina frá okkur. restin af ferðinni kemur
von bráðar
»
13.07.2006 00:51:47 / leosnaer
Það viðraði vel til fagnaðar
þennan dag. Sólinn reis úr sæ og tölti upp á skýlausan himininn
og ældi glóandi og geyslandi fossi yfir silfraðan sæflötinn. Ég
vaknaði með stýrur í augum,krullaðan lubban út í loftið og mig
grunaði í fyrstu að skunkur hefði fretað í kjaftinn á mér en
komst örskömmu síðar að því mér til mikillar ánægju að óþefnum
var óumdeilanlega áfengisneyslu gærdagsins að kenna. Ég hóaði í
Daða sem lá í fósturstellingum í sófanum og sagði honum að nýr
dagur væri genginn í garð með öllum sínum möguleikum. Hann
brosti bara og gekk að ísskápnum og náði í 2 ölkollur, skenkti í
2 glös reyf upp gítarinn og byrjaði að spila wild thing. Ég
henti bjórnum í fésið á mér og tók undir með honum. Um 11.00 um
morguninn vorum við komnir á kúbuna og ákváðum að rölta
ströndina. Við komum við á öllum álitlegum pöbbum sem við
löbbuðum fram á þangað til að við hittum capt. David þar sem
hann situr ásamt tylft af glæsilegu kvennfólki. Við ákváðum að
tylla okkur hjá þeim. Daði þykir vera veiðimaður mikill sem og
hann sannaði þennan umrædda dag, eftir c.a 10 mín. Var hann
kominn með föngulega stúlku upp á arminn. Við redduðum okkur
gítar og spiluðum fyrir gesti og gangandi, en Daði lætur sig
hverfa upp á herbergi og er þar dágóða stund en kemur
skælbrosandi og rjóður í kinnum til baka og áður en að ég veit
af þá er hann kominn með targetið mitt upp á arminn, mér til
lítillar ánægju. Svo að ég legg frá mér gítarinn og panta mér í
glas, en þá er helvítið farið með fenginn upp á herbergi.
Þjónninn kom með glasið til mín og með því fylgdi bréf, í því
stóð. Ekki hætta að spila núna, gætirðu kanski spilað fyrir mig
í kvöld, ég verð með grill veislu heima hjá mér.. ég leit í
kringum mig og á nokkrum borðum frá okkur sátu 4 stelpur 3
gullfallegar og ein um það bil 200 kg. Og það þurfti endilega að
vera hún sem sendi bréfið. Ég brosti bara til hennar og þóttist
ekkert skilja, teiknaði mynd af stjána bláa með bullandi
standpínu og sendi bréfið til baka. Í því er stúlkan fær bréfið
þá kemur Daði enn rjóðari í kinnum og heldur áfram að veiða. Í
sama andartaki og ég hyggst segja Daða frá bréfinu þá fæ ég
þéttings fastan kinnhest og Daði lamast úr hlátri, stelpunni
fannst stjána bláa djókið ekkert fyndið. En Daða fannst það og
fór að segja öllum frá þessum ósköpum og þetta hafi endað með
því að 200 kg hnísa hefði kýlt mig, en mér fannst nú gamanið
heldur grátt. Dagurinn leið og Daði var að leita sér að 6
takmarkinu þennan dag, er hræðilegir hlutir gerast. Ég fann Daða
hvergi, það kom til mín stelpa og segir mér að það sé nú
eitthvað meira en lítið að honum frænda mínum og að hann sé uppi
á herbergi. Ég labbaði upp á herbergi og opnaði dyrnar ofur hægt
og lagði á hlustir, en heirði ekkert nema veiklulegan andadrátt.
Svo sé ég Daða þar sem að hann liggur látinn á stofugólfinu, það
var mikil ró yfir honum þar sem að hann lá með augnlokinn hálf
lokuð og með aðra höndina á beinstífum besefanum og hina á J.W
flösku, þetta kætti mig reyndar þegar að ég tók Iceland air
merkimiða af einni töskunni, setti hann á stóru tánna á honum og
breiddi yfir hann hvítt lak. Henti mér svo í sturtu og dreif mig
á ball með liðinu. Eftir það fara að koma stórar gleiður í
minnið en ég man það að ég hélt heljarinnar partý um nóttina og
náði að vekja Daða, en þá var hann kominn inn í herb. Og í
nærbuxur og hvað eina og hann trúði ekki lík brandaranum mínum.
Daginn eftir þá fékk hann reyndar sönnun um það. Því að vinkona
mín kom reglulega og hirti af mér fötin og þreif þau og það
hafði hún gert kvöldið áður og komið að Daða nöktum undir laki
með merkimiða á tánni, þetta fannst henni ekki sniðugt, þannig
að hún klæddi hann í brækur,bar hann í rúmmið og breiddi yfir
hann. Eftir þetta var hann kallaður Daði heitinn..
»
26.04.2006 23:50:10 / leosnaer
það er búinn að vera einhver
bölvuð rit-stífla í mér og ég vil byðja ykkur kæru lesendur
afsökunar á því
Það var um miðjan janúar að
línuskipinu Byr var lagt úti í Brasilíu og flestum Byrverjum var
sagt upp, en ég var ráðinn í að sjá um skipið og sjá til þess að
ljósavélin gengi sinn vanagang og engu væri rænt frá borði. Það
gekk vel fyrstu 2 sólahringana, svo nennti ég því ekki lengur því
að mér fannst sopinn svo góður svo að ég réð Brasilíu búa til að
vera þar allan sólahringinn og borgaði honum 10.000 kr á mánuði
hehe og reyndar frítt fæði líka. Og einn daginn þá vorum við capt.
David, hann var skipstjóri á fleyginu ógurlega á tímabili. Já við
vorum frekar þunnir eftir erfiða helgi svo að við fórum á strandar
pöbb að fá okkur nokkra kalda þá hittum við amerískan skipstjóra
sem var að koma í land, nema hvað hann býður okkur í glas og svo
bauð hann okkur í partý heim til sín um kvöldið. Við þáðum það svo
kvöddum við hann og fórum heim að græja okkur því að við ætluðum að
gista hjá honum um nóttina. Um kl 8 um kvöldið þá leggjum við í
hann en þegar ég keyrði ströndina orðinn vel drukkinn á fordinum
sem ég leigði þá urðu á vegi okkar 4 huggulegar hnátur svo að ég
stoppa bílinn og býð þeim í partý. Þær þáðu það svo að við
stoppuðum á bensínstöð og ég fyllti tankinn, keypti bjór og eina
bokku af johnny walker. Þetta var um 2 tíma keyrsla og eftir ca
30.mín þá man ég ekki meira enda búinn með hálfa flösku. Nema hvað
ég missi stjórn á bílnum og dúndra útaf og í því þá stoppar löggan
við hliðina á okkur og biður mig um að koma út úr bílnum, ég
klöngrast hálf beyglaður út úr druslunni og set upp sparibros. Þeir
spyrja mig hvort að ég hafi verið að drekka, ég jánkaði því og
kvaðst hafa drukkið 3 bjóra áður en í förina var haldið. Þeir fara
þá að hlæja að mér og benda á framdekkið hjá mér, það var
gersamlega horfið.. ég hafði keyrt fleiri fleiri kílometra á sprungnu dekki ég
ákvað að bjóða þeim pening fyrir að hirða mig ekki og stinga mér
inn þeir þáðu það með bros á vör og spurðu mig svo hvort að ég væri
ekki með varadekk jú ég var nú hræddur um það, svo skiptu þeir um
dekk fyrir mig og báðu mig um að vera ekkert að drekka meira ef að
ég ætlaði að vera að keyra, svo kvöddumst við með handabandi. Ég
settist inn í bíl og setti músíkina í botn og brunaði af stað. Svo
þegar við vorum lokksins búinn að finna húsið þá stoppa ég bílinn
og ætla að rölta í rolegheitunum út, þá mér til mikillar undrunar
er hurðinni rikt upp hjá mér og ég var kýldur kaldur, þá voru
stelpurnar orðnar svo skelfilega hræddar í bílnum að þær fengu
sjokk og grenjuðu og hrópuðu ó-yrðum á mig hehe. Ég fór inn í húsið
og reyndi að sjatla málinn en það gekk voðalega illa, en hófst þó
eftir nokkur lög og nokkur glös þarna vorum við í partýi í heila 4
sólarhringa og það var geðveikt gaman hjá okkur svo vakna ég einn
morguninn og ákvað að fara heim ég lét ekki kóng né prest vita og
rölti út í bíl þá var capt. David dauður þar ásamt einni hnátu. Ég
bruna af stað og er búinn með nokkra bjóra þegar þau vakna og
stelpan varð brjáluð þegar hún komst að því að ég hefði bara farið
án þess að taka vinkonur sínar með. Við David hlógum bara af þessu
og heltum í okkur bjór, svo skiluðum við stelpunni af okkur og
fórum einn strandhring á ponta negra það fara einhverjar stelpur að
góla á okkur þegar við keyrum framhjá einum veitingastaðnum og við
brosum bara og glápum á þær, en ég gleymdi mér aðeins við þessa
fögru sjón og keyri aftan á brynvarðan bíl. Svo stökkva út úr honum
hermenn í fullum skrúða og ég held að ég hafi aldrei minni stuttu
ævi verið jafn agalega hræddur eins og þá. Ég rauk út úr bílnum og
fór eitthvað að brúka munn og heimtaði að fá að tala við yfir mann
þeirra þá sprungu þeir allir úr hlátri, því að ég var að tala við
hann. Ég sagði honum að það þíddi ekkert að snar hemla svona á
miðri strand götunni þá hlógu allir enþá meira því að þeir höfðu
verið búnir að vera þarna stopp í 3 klukkutíma það sá ekkert á
bílnum þeirra ein húddið hjá mér var í köku þannig að þeir sögðu
mér bara að fara heim og að þeir myndu hringja á lögguna ef að þeir
sæju mig aftur keyra fullur á bílnum, ég gerði það og svo fórum við
capt. David heim og heltum í okkur og héldum heljarinnar
partý.
»
09.03.2006 16:13:51 / leosnaer
Við frændur höfðum verið í mestu
makindum að sóla okkur á ströndinni með malibu flösku og ananas
safa okkur við hlið þegar að það mæta tvær stórhuggulegar
stelpur að okkur og byrja að spjalla, við héldum að sjálfsögðu
að þær væru bara að tala við okkur af því að þeim fyndist við
svo fallegir og heillandi strákar, en svo gott var það nú ekki
því að þær plötuðu okkur í snekkju siglingu sem við að
sjálfsögðu þurftum að borga fyrir og þegar við vorum búnir að
því þá hlógu þær af okkur og létu sig hverfa. En ferðin átti að
vera daginn eftir kl13.00 stundvíslega svo að við höfðum jú
nægan tíma til að skvetta rækilega í okkur og ákveða hvaða
karakterar við ættum að vera í ferðinni. Svo að við skelltum
okkur upp á hotel og settumst á svalirnar og horfðum á sólsetrið
og plönuðum morgundaginn. Ég fékk það hlutverk að vera flugmaður
og Daði ákvað að vera lögfræðingur, svo fórum við út á djammið
og ákváðum að æfa karakterana okkar. Fórum og spiluðum á
hommabar við góðar undirtektir. Svo voru staðirnir þræddir einn
af öðrum og á heimleiðinni þá keypti Daði sér uppblásna rollu
sem átti að notast í neyð á síðasta kvöldi ef engin stúlka gæfi
honum séns á sér. ónefndur stórvinur okkar kom með okkur heim
ásamt einhverjum norskum hnátum, en eftir stutta dvöl uppi á
hóteli þá vilja stelpurnar endilega fara á norskan bar sem var
rétt handan við hornið, við gátum ekki látið stelpur drekka
okkur undir borðið svo að við ákváðum að skella okkur með þeim
en þá er nýi stórvinurinn sofnaður í sófanum svo að hann var
bara skilinn eftir hehe. Eftir nokkur glös þá stungu hnáturnar
okkur af og við
sátum einir eftir með gömlum sjóhundum með yfirvara skegg og
upplýst tatto á
norskum bar,á eyju langt suður í höfum svo að við ákváðum að
láta þetta gott heita og spara okkur fyrir snekkjusiglinguna
daginn eftir, svo var ég víst búinn að lofa að spila aftur á
hommabarnum kvöldið eftir. En þegar við komum upp á hótel þá fer
Daði á undan inn og lamast skyndilega úr hlátri og lekur niður
með veggnum og getur sig hvergi hreift svo að ég príla yfir hann
og sá þá mér til mikillar ánægju hvað vakti þessa rosalegu
kátínu hjá piltnum, þá lá nýi félagi okkar í mestu makindum að
nauðga rollunni hans Daða og strákgreyið var eins og eldhnöttur
í framan þegar að hann var að hisja upp um sig buxurnar en Daði
náði að smella af einni mynd sem betur fer hahahaha. Hún er í
myndum hérna við hliðiná.
Eftir stuttan svefn þá þurftum við að
hlaupa niður á strönd til að ná í snekkju ferðina við mættum á
slaginu eitt og kættumst lítið eitt þegar við sáum að þarna voru
krakkar á okkar aldri, ekki einhver gamalmenni svo að við pöntum
okkur sitthvor 3 staupin og sitthvorn bjórinn og bombum þessu í
andlitið á okkur og lítum svo glaðir í kringum okkur og datt þá
brosið allsvakalega af okkur þegar við sjáum að allir eru að horfa
hneikslaðir á okkur og segja eitthvað miður fallegt um drykkju siði
okkar, það voru allir bara penir á því með appelsínusafa eða
nartandi í vínber, þarna var hollustan í fyrirrúmi þá sagði Daði
svo eftirmynnilega “frændi.. nú erum við á vondum stað” ég ætla að
klára söguna seinna þegar Daði er búinn að senda mér fleiri
myndir og þær eru nokkuð góðar og verða að fylgja skriftunum
eftir annars er ekkert gaman af þeim. En verið þið margblessuð og
hafið það gott í millitíðinni og verið góð hvort við
annað
»
08.03.2006 01:17:43 / leosnaer
elskurnar mínar þa kemur ný saga í kvöld... og það eru sko margar
aðrar til að segja og þær koma mun fljótar en nýurstu færslur
»
16.02.2006 08:07:09 / leosnaer
Við frændur mættum fræknir að
vanda á eyjuna björtu kanarý ekki alls fyrir löngu, en ykkur að
segja þá vorum við heldur drukknir. En það var í góðu lagi því
að Daðólfur frændi með meiru vakti mig á áfangastað sem var
fyrir öllu því að mér fannst svefninn góður í rútunni á
hótelið og eftir það munum við hvorugir neitt...
en er við
frændur vökum daginn eftir hressir að vanda þá rölltum við í
næstu kjörbúð og keyptum byrgðir fyrir stríðið, það er að
segja daginn. Og meðal vín-varningsins var allt í einu hár
eyðandi krem,og þá skaust mér í minni orð hans Magna- rambó
að Daði ætti að skafa á sér aftur endan hann tók því heldur
alvarlega og keypti kremið en svo fór hann að brúka nýja
efnið mér til mikillar ánægju því að ég fékk að taka mynd
fyrir,á meðan og á eftir af botninum á honum, sjá hér við
hlið og mér til allra hamingju þá mislukkaðist það all
svakalega heheheh.en hann ákvað að prufa nýja rassalúkkið á
skonsurnar og við skelltum okkur á dansiball, þar var nóg af
norskum, finnskum og sænskum hnátum sem voru til í geymið. En
ég var full ölvaður að vanda svo að ekkert gekk hjá mér, svo
að ég hélt heim á leið um sjö-leitið en þegar ég var að
leggjast í koju þá er barið hraustlega á dyr. Ég var síður en
svo ánægður með upp-bankið en fór á rauðu nærunum frekar
illur til dyra, þar bíða 4 fræknir drykjusvollar frá
finnlandi með vodka bokku og brjóst fögur fyrir utan
hurðina,ég gat ekki annað en boðið þeim inn en svo fóru þær
að byðja um dust, þá fattaði ég um hvað málið snérist, Daði
djöfull var búinn að bjóða í partý. Og svo bankaði ein þjóðin
af öðrum á dyrnar og ég var alltaf sama fíflið að fara til
dyra. Það var orðið full
fjölmennt í íbúðinni okkar að mínu
mati þegar Daði mætir loks á svæðið, svo að ég skamma hann lítið
eitt, en hann sagðist ætla að sikta eina út og reka svo restina af
evropu út það fannst mér gott mál en svo bregð ég mér á salernið og
það næsta sem ég veit þá er Dustinn sofnaður inni í herbergi og
dúndrandi partý frammi. Ég reyndi eftir bestu getu að stöðva teytið
en ekkert gekk svo að ég tjúttaði með hnátunum til kl eitt daginn
eftir en þá vaknar Dustinn “Daði” og rekur stelpurnar út og segir
að það gangi ekki að vera að halda partý á hóteli, okkur gæti verið
hennt út hahaha.
Það eru margar góðar eftir að koma af
okkur úr þessari ferð, meðal annars þegar Daði kom út úr skápnum og
þegar við vorum plataðir upp á svið á snilldar hommabar og þar
vorum við látnir leika listir okkar, við skiluðum okkar verki vel
að vanda
»
22.01.2006 16:22:33 / leosnaer
Það var heljarinnar ferðahugur í
okkur frændum, helgin fyrir þjóðhátíð og við höfðum ekki komið
heim á klakan í tæpt ár. Við sátum í mestu makindum á
skemmtistaðnum Zorro við vín drykkju. Þá brunar að
okkur leigubíll og út úr honum koma tveir útgerðarmenn,
sótsvartir í framan af reiði, þið eigið að vera mættir upp á
flugvöll eftir klukkutíma hvar eruð þið búnir að vera síðustu
daga það eru allir
búnir að vera að leita af ykkur!!! Við sögðumst nú bara hafa
verið með video kvöld undanfarið uppi á hoteli, en þeir vissu
betur þannig að við urðum að segja þeim sannleikan að við höfðum
kynnst einhverjum ítölskum stelpum og við vorum búnir að vera
heima hjá þeim síðustu 2 sólahringa í kengilmögnuðu partýi. Við
drifum okkur upp á hotel og pökkuðum á met tíma
og héldum á
flugvöllinn. Það var frítt vín í öllum flugum til Baltimore
þannig að við munum ekkert fram að því en í Baltimore sá Daði
að sér og minnkaði við sig í drykkjunni en ég reyndar
klikkaði á því og man því ekkert fyrr en ég er í herjólfi að
skamma Daða fyrir að hafa ekki minnt mig á að kaupa vín í
fríhöfninni.
Þegar hér er komið- við sögu þá er
kominn fimmtudagur og mikill spenningur og rafmagnað andrúmsloft lá
yfir eyjunum, fólk farið að streyma á skerið og veðrið var frábært.
Við sátum við drykkju inni í bílskúr á búastaðarbrautinni við
félagarnir ég,Daði, Magni,Biggi,Hjörtur,Einar(menntamaður) og
fleiri góðir og vondir
menn. Það var búið að slátra nokkrum flöskunum áður en að við
höldum á húkkara ballið og eftir það þá fór ég heim og náði í gítar
og munnhörpur og 2 vodka flöskur, svo var ferðinni haldið niður í
dal.
Þegar ég kem á svæðið þá er Daði
búinn að sanka að sér stelpum og ljúga í þær að hann sé með frægan
tónlistarmann úr Brasilíu með sér og hann sé að koma, ég tók þátt í
leiknum hans þangað til að það komst upp um glæpinn er Siggi Braga
klappar á öxlina á mér og býður mig velkominn heim og spyr hvað sé
að frétta af mér og ég asnaðist til að svara honum á íslensku. En
Daði hafði náð að tæla einhverjar tvíburasystur og fór með annari
þeirra heim, klukkutíma síðar mætir stelpan aftur í dalinn og Daði
30. mín seinna og klúðraði dæminu er hann stekkur í fangið á hinni
systurinni og segir henni að hún sé besti dráttur sem hann hefði
fengið, hann uppskar rauða kynn eftir fastan kynnhest fyrir þessi
orð sín.
Kl. Var orðin 9 og það var kominn
mikil þreyta í mannskapinn og svo sofnuðu allir einn af öðrum í
kringum mig, og á þeim tímapunkti fanst mér alveg hræðilega findið
að skilja alla eftir þarna sofandi og láta þau brenna í sólinni svo
að ég ákvað að rölta heim á leið en ég sofnaði á umferðar eyjunni
niðri í dal, og svaf þar í átta tíma og skaðbrann í framan á meðan
Daði og Helgi forseti og co vöknuðu i hádeginu og skildu mig eftir
niðri í dal til þess eins að verða eins og karfi í framan. Restin
af þjóðhátiðini fór í að bera aloavera í andlitið á mér þeim til
mikillar ánægju.
Ég og Daði erum að fara
til canary á
miðvikudaginn þannig að það eiga sennilega eftir að koma ferskar
sögur á næstu vikum verið heil og sæl og hafið það gott hérna á
klakanum á meðan heheheh
»
07.01.2006 04:22:02 / leosnaer
ég gleymi því ekki þegar Brasiliu lellin , Magni Rambo og
loðnasta rassgatið voru saman a Byr Ve ásamt
nokkrum indonesum og fleiri góðum mönnum !...það var einn
skemmtilegasti tur sem eg man eftir ! Bragi Heiðberg vafasamur
gamall Sjóhundur sem hafði verið á togurum fra unga aldri
stjórnaði Indónesunum eins og herforingi a milli þess sem hann tróð
í pípuna ! ! Martein a kosini talaði lítið en reyndi að fiska
!en hann fiskaði ekkert kallpungurin. það var skipperin, lúðu
kóngurin og óumdeildur túnfisk kóngur íslands Sveinn Kenndur við
Skip sitt Byr ,ávallt kallaður Svenni a Byr sem sá um fiskeríið!
skipperin og brasiliu lellin eru feðgar og fengu frænda sinn Daða
nokkurn Tryggvason til að koma um borð en sá aumi frændi hafði lent
i útistöðum við lögin a höfuðstað norðurlands og má segja að þeir
feðgar hafi séð aumur á frænda litla .. en Tryggvason atti eftir að
stimpla sig rækilega inn fyrsta dagin um borð þegar hann upplýsti
áhöfnina að hann væri sennilega með loðnasta rassgatið um borð
!...og til að styðja mál sitt girti hann brókina niður um sig og
syndi herlegheitin og það var ekkert smá! Loðnasta rassgat norðan
heiða skal þessi verða kallaður hugsuðum við með okkur ! ! ! !
hehehe blessaður Serðir,,, sit herna með einn kaldan og freyðandi
og hlusta á Bubba tónleikana !
varð að deila þessum hugsunum með þer! eftir að ég ´sá meilið þitt
þar sem þu varst greinilega að hlusta a bubba !
Kveðja :
RAMBO
| |
»
05.01.2006 10:39:44 / leosnaer
jæja þá er nýtt ár gengið í garð með nýjum vonum og væntingum og
gleði í alla staði. jólin voru frábær eiginlega þau bestu sem ég
man eftir síðan að ég var gutti, ég var mest í faðmi
fjölskyldunnar en kvöldunum eiddi ég í faðmi frábærar stúlku sem ég
einhvernveginn "endur-kynntist" yfir hátíðarnar. en nóg um það ég
stefni á að setja inn nýja sögu af okkur frændum í kvöld. ekki
örvænta það er nóg af flottu ruggli eftir að líta dagsins ljós af
okkur frændum á þessari síðu
»
31.12.2005 16:40:59 / leosnaer
Ja ja ja sveinson og magnason oska landsmonnum ollum og
serstajkega lesendum og vinum og kunningum ollum gledisleg nys ars
og megi komandi ar verda ykkur heillarikt og spennandi vid situm og
hlustum a bubba og bidum eftir nyju ari sem aldrei fyrrr
i tilefni af thvi settum vid mynd af lodnasta rassgati nordan
heida ja kaeru lesendur mr tryggvason laetur her gammin geysa
sjaumst a nyju ari kv eyjatrollarnir
»
24.12.2005 15:31:50 / leosnaer
GLEÐILEG JÓL PUNGAR OG PJÁSUR. og þið sem senduð mér jóla kort þið
eruð frábær, en ég er svo latur á jólunum að ég nenni ekki að
standa í því að skrifa jóla kort en takk fyrir mig samt hehe, ég
eiði tímanum mínum í eithvað allt annað muhahaha. hafið þið það sem
allra best yfir hátíðarnar  jóla kveðjur frá Sveinsyninum!!!!
»
19.12.2005 23:51:57 / leosnaer
Þessi helgi var bara snilld. Á
fimtudaginn þá sat ég hérna heima til að verða 11 fór svo á
conero að hitta hjört,Árna Óla og fleiri snillinga, þaðan fórum
við á Þröstinn ógurlega sem var hress að vanda síðan var
förinni haldið í teiti til bjögga meistara þar var glens og grín
eins og ávalt, svo var þreytan farinn að segja til sín svo að ég
labbaði heim með viðkomu í partýi á bröttugötunni, man reyndar
ekkert hvar..
Daginn eftir vakna ég með tilheirandi
hausverk svo að ég gleypti nokkrar panodil við helstu verkjunum og
skolaði þeim niður með volgum becks í gleri. Í hádeginu hringir svo
Þórður goði í mig og býður mér með sér á sálar ball á skaganum, mér
leist nú ekkert á það í fyrstu en eftir nokkra öllara og smá
umhugsun þá skellti ég mér í fimm flugið og kýldi bara á
geðveikina. Það var teyti hjá Dodda og Birkir keysari sem er litli
bróðir hans og gítar snillingur með meiru, og hann reddaði okkur
gítar. Við slógum upp heljarinar veislu með gítar, munnhörpu og
öllu tilheirandi sem var bara snilld. Þaðan héldum við í partý til
Konungs sem er kenndur við Öllara, þar var annað eins fjör og svo
var haldið á sálina, þar var bara gaman að vanda en eins og
vanalega þá var mér hennt út af ballinu í restina.. við héldum
eftir partý hjá Dodda sem stóð til 10 um morguninn svo var ég
ræstur í hádeginu og þá var gítarinn rifinn upp aftur og gleðin
hélt áfram til 16.00 þá fór ég í rútu til RVK og á BSÍ byðu mín
drottningar sem að ég kynntist á Spáni í sumar og við fórum í
Smáralyndina í jólagjafa vesen og bjór þamb, sem kláraðist á 15
mín, fljótustu jóla innkaup í sögunni. Síðan var haldið á matsölu
stað að seðja hungrið og svala þorstanum. Svo fórum við í partý til
Einars og hittum þar bræðurna MAgnilio og Guffando. Svo fórum við
öll saman niður á Hverfisbarinn, þar sem pistla og rithöfundurinn
Gilsinegger var buffaður af stelpu fyrir utan, hehe það var bara
fyndið. Svo fór nú að slá aðeins í minnið hjá manni en við fórum á
ekkað pöbba rölt ssem endaði í teyti hjá Einari Erni eldri og þar
vakna ég daginn eftir og hann átti til allra lukku nokkra bjóra sem
voru svo sötraðir yfir daginn eða þangað til að ég endaði í
herjólfi og á eyjunni björtu það eru nokkrar myndir komnar,í
Skaginn.
»
16.12.2005 15:46:15 / leosnaer
Við komum í
land um 9 leitið að kvöldi til og einn félagi okkar beið á
bryggjunni með kassa af bjór og eina rom flösku, en hann hafði
ekki sagt okkur að dóttir sín væri í heimsókn, hún beið með
brennivíninu á bryggjunni og við vorum alveg dolfallnir þegar
við sáum gripinn þvílíka skutlan. Við settum báðir upp sparí
svip og þóttumst góðir. Eftir nokkra bjóra og nokkur lög á
gítarinn þá var farið að myndast eitthvað ólýsanlegt gljúfur á
milli okkar frændana, það tóku allir eftir því að eitthvað
skrítið væri í vændum.
Við vorum eins og skrautfuglar að
sína fjaðrirnar okkar þegar við vorum að spjalla við skvísuna. En
eins og yfirleitt gerðist á fyrsta kvöldi í inniverum okkar þá
drukkum við yfir okkur og minnið hvarf fljótt. En daginn eftir þá
mætir Marín í heimsókn á hotelið okkar, en Daði var sofandi á sínu
herbergi svo að ég sá mér þann leik að bjóða henni bara í mitt
herbergi í bjór og svo var planið að fara áður en að minn helsti
keppinautur myndi vakna. En hún vildi endilega fara í sturtu áður
en að við færum á ströndina, sem var í góðu lagi. Ég beið hennar í
rólegheitum úti á svölum er ég heiri umgang inni og mér varð nú
ekki um sel er ég sé djöfulinn hann Daða vera að ræna bjór frá mér.
Hvað ertu að brasa spyr ég hann! Hva ertu ekki í sturtu,hver er
þarna inni spyr hann. Með bros svara ég að það sé hún Marín,
helvítis bófinn þinn sagði hann og hljóp inn á sitt herbergi og
skellti á sig veiði vatni og gel í hárið á met tíma og kom svo áður
en að hún kom úr sturtunni. Ég reyndi að útskýra fyrir honum að
hann væri ekki velkominn í mitt herbergi eins og staðan væri, og þá
hófst stríðið fyrir alvöru.. við lögðum grjót í götu hvers annars
þegar enginn sá til og hún hafði nú bara gaman af. Ég hafði gleimt
sandölunum mínum niðri í bát þannig að ég var berfættur þegar við
erum á leið á ströndina. Þetta fannst skvísuni ekki nógu gott svo
að hún gaf mér sandala að gjöf, þeir voru seinna kallaðir
mandalar því að seinna nafn hennar var Manda. Þetta vakti ekki
mikkla lukku hjá frændólfi. Hann ákvað að fara í sókn og bauð henni
út að borða um kvöldið þegar ég brá mér frá á barinn, en ég frétti
af þessu svo að ég bauð pabba hennar út að borða og spurði hann
hvort að það væri ekki tilvalið að dóttirin kæmi með okkur. Þetta
fanst honum mjög sniðugt en ekki honum Daða mínum. Þau fóru heim
til sín að græja sig og við Daði upp á hótel. Þar sturtar hann í
mig brensa og ég var orðinn sótsvartur og svaf af mér
kvöldverðinn.. Mér fannst þetta vera glæpsamlegt bragð hjá honum,
en mér til góðs þá varð hann eitthvað veikur eftir matinn svo að
hann gat ekki spilað almennilega úr þessu og varð að fara heim
snemma. Svona gekk þetta hjá okkur í nokkra daga en aldrei gekk
neitt að ráði með skvísuna. Ég komst að því að henni fannst becks
besti bjórinn svo að ég átti hann alltaf til þegar að ég vissa að
hún væri að koma í heimsókn. En með það sama þá mætti Daði alltaf
til að skemma fyrir mér, og drakk frá okkur allan bjórinn
bölvaður.
Nú var þetta að verða alvarlegt hjá
okkur við töluðumst ekki lengur saman frændurnir. Það var komið að
5 kvöldinu.þetta var úrslita kvöld, því að þetta var farið að angra
okkur mikið, við sömdum um að nú væri mál að hætta öllum brögðum og
berjast heiðarlega. Hún bauð okkur báðum í partý svo að ég fór og
keipti kippu af becks og flösku af koníaki handa pabba hennar, Daði
kom yfir til mín því að við ætluðum að vera samferða í teitið, en
þegar ég kem úr sturtu þá er Daði og vínið horfið, bölvaður
refurinn hafði svikið sáttmálan... ég mætti töluvert seinna í
partýið súr á svip.
Nú var nóg komið fannst okkur báðum
svo að við tókum upp gamla siði og fórum bara saman á einhvern bar
og vorum þar með gítar og fjör, og við töluðum aldrei aftur við
stelpuna sem kom upp á milli okkar, enda hafði hún ekki nokkurn
einasta áhuga á okkur hehe við gleimdum alveg að hugsa út í
það
»
08.12.2005 18:29:00 / leosnaer
Þessi er ekki fyrir
klíjugjarna
Við vorum búnir að vera 3 daga í
maceo, og það var kominn tími til að fara að finna sér hótel og
sofa smá. Við frændur höfðum komið í partý 2 sinnum til eins manns
sem var með okkur á sjó, hann hafði fundið sér hótel á fyrsta degi
en okkur frændum fannst það vera of mikil fyrirhöfn þannig að við
frestuðum því alltaf.. En nú var svo komið að við vorum að láta
lífið úr þreytu og okkur vantaði samastað svo að við tékkuðum okkur
inn á sama hótel og skipsfélagi okkar var á. Þessi maður var vel í
holdum en samt slíkt kvennagull að ef hann kyssti konu einusinni þá
vildu þær helst giftast honum, og þetta hafði einmitt komið fyrir
hann á fyrsta degi í maceo ásamt hinum viðkomustöðum
okkar.
Þegar við komum úr lyftunni á 3 hæð
þá sjáum við kauða vera að pissa í ruslafötu úti á gangi þetta
fannst okkur mjög sniðugt en karl greyið var steinsofandi svo að
hjálpum honum inn í herbergi og ákváðum að hrekkja hann bara daginn
eftir.
Daginn eftir þá þurftum við báðir að
losa okkur við hluti sem lykta illa og koma úr aftur endanum á
okkur og við höfðum gert það að sið að framkvæma þessa athöfn inni
á klósetti hjá honum á öllum viðkomustöðum sem við lentum á, þetta
var nú gert í þeim tilgangi að spara klósettpappír. Þegar við æðum
óvelkomnir inn í herbergið hjá honum þá mætir okkur þessi
skelfilega afturenda lykt honum til mikillar ánægju. Nýja kærastan
hans var í sturtu þannig að við “héldum” að kauði hefði bara verið
að losa vind en daði
sá að það var tóm fantadós á rúmminu hjá félaga okkar og hann spyr
hvort að hann hefði hellt niður, gamlinn hélt nú ekki hann hvaðst
bara hafa rekið svona heiftarlega við og þetta væri bónus þarna á
rúmminu og það liti betur út fyrir kærustu hans ef að hún héldi að
þetta væri bara fanta og þetta útskýrði lyktina vel þetta fannst
okkur sniðugt svo að við rændum okkur bjór í skápnum hjá honum og
skáluðum fyrir þessu, eftir nokkra bjóra þá kemur kærastan út og
segir æi getið þið frændur hvergi komið án þess að vera til
vandræða eða hellt niður, svo skippti hún á rúmminu sem vakti upp
mikkla kátínu hjá okkur félögunum. Þegar við vorum búnir með
bjórinn hans og klósettpappírinn þá hédum við frændur á ströndina.
Eftir smá röllt og nokkra sopa þá hittum við alla skipsfélaga
okkar. Sá breiði var búinn að brjóta 4 garðstóla með þyngd sinni,
þegar stelpurnar á barnum láta hann loks fá stól úr brasilískum
harðvið. Það brotnuðu reyndar fleiri stólar um kvöldið þegar að það
endaði allt í slagsmálum hjá nokkrum af skipsfélögum okkar hehe.
Þessi sólahringur var frábær, við frændur fundum flottan karókí
stað sem okkur var reyndar hent út af fyrir slæma hegðun, fólkið
þarna inni var að taka karókíið full alvarlega, og okkur varð á að
hlæja að því en ég þori ekki að klára söguna það gæti sært sálina
hjá viðkvæmum, set kanski einhverar svæsnar í bókina þegar að henni
kemur;
»
Síður: 1 2
|
|